Glætan.. aldrei mun ég skilja þetta.. ég er í fríi þessa helgi! :) Alveg magnað! Og nóg að gera.. út á morgun og partí (mögulega) á laugardag! Reyndar er líka fullt að gerast í skólanum.. á að skrifa ritgerð um tungumál! Hvað er tungumál!! Kræsturinn. .miklu einfaldara að skrifa um dauðarefsingar...
Eyddi deginum að mestu í stunur og más, Go into the Garden, Maud. Hljóðfræði takk fyrir... 17 bls var gífurlega dugleg! Öll verkefnin leyst... er soldið stolt af mér! Nei reyndar ekki.. sofnaði 3svar :( var samt með diskinn í gangi.. held að nágrannarnir hafi verið eitthvað ósáttir út af hávaðanum... hækkaði græjurnar upp yfir hættumörkin (byrjaði að blikka ljósið sko) til að heyra almennilega í kallinum... eftir smá stund var DMX eða 50 Cents sett í botn í næsta nágrenni og yfirgnæfði lætin í mínum tækjum þannig ég varð að gjöra svo vel að taka mér pásu þar sem ég heyrði ekki orðaskil. Þyrfti að fá mér heyrnartól sem þarf ekki að hlaða.. sem sagt með snúru, hin eru ekki nógu góð!

! Ford Mondeo, gullvagninn svokallaði! Eina sem var að var að við (ég og Álfa) kláruðum alkóhólið á föstudag! :( og við áttuðum okkur ekki á því að næsta ríki var á Selfossi og það var bara opið til 14 á laugardeginum þannig við misstum af því! En þá bjargaði Arna okkur... blandaði bara eina sangria sem við kláruðum á nóinu! Júmmý! Við grilluðum kjúlla.. satay kjúkling með salati og flottheitum. Það snjóaði meira að segja á okkur fyrsta kvöldið... og þegar við vöknuðum á laugardeginum var allt hvítt! Ég skil samt ekkert í því afhverju við tókum námsbækurnar með okkur enda var ekkert litið í þær... kíktum í tarot og fórum í andaglas! Horfðum á In-Laws sem er geggjuð kvikmynd og nauðguðum lögum eins og Here without you, THis is the new SHIT og White Flag! Á sunnudeginum vorum við duglegar, tókum til og vorum komnar af stað um 16... eftir u.þ.b. hálftíma segir Álfrún: tókuð þið ekki bjórinn úr ísskápnum!!! ARG!! Við tæmdum ekki ísskápinn... eftir smá rökræður um það hvort við ættum bara að halda áfram og leyfa næsta helgarfólki að njóta þessara veitinga í boði Örnu var ákveðið að það gengi ekki þannig að við þurftum að gjöra að snúa við! Allir ávextirnir, gos, bjór you name it biðu eftir okkur! Næst, Arna þegar ég spyr hvort að það sé búið að tæma ísskápinn vertu viss um að það áður en þú svarar :P híhí! En hvað með þetta... það var bara fjör að eyða klst lengur á ferðinni enda bíllinn algjör draumur! Verst ef maður fær gyllinæð út af ofnotkun á rasshitaranum!!