Aldan

föstudagur, september 10, 2004

Ég er flutt!!!


Loksins, þetta tók sinn tíma! Ótrúlegt hvað maður á mikið af dóti, íbúðin er full. Trúi því ekki að ég hafi komið öllu þessu dóti fyrir í litla herberginu í Grafarvoginum. Íbúðin er stórgóð, reyndar eru nokkrir vankantar, eins og t.d. það að við heyrum allt af efri hæðinni, hvert einasta fótatak. Svo virðist sem við búum í köngulóarlandi! Það er allt morandi í köngulóm utan á húsinu, sérstaklega mikið í kringum gluggana!
Skólinn er byrjaður aftur, þvílíkt vesen að velja sér fög! Ég vildi vera í 20,5 einingum er víst ekki hægt, líka allt of mikið. Svo þarf að velja fög sem skarast ekki á við önnur fög eða vinnuna! Ég endaði í 18 einingum eftir miklar pælingar, á samt örugglega eftir að breyta þessu öllu aftur.
Aumingja Anna er alveg blá og marin eftir flutningana, við vorum í viku að flytja!! Hræðilegt alveg, aldrei tekið svona langan tíma. En við vorum að flytja bara litla hluti fram og til baka, bæði af Skúló og Grafó. Ég er HÆTT að kaupa bækur!! Við erum með svo mikið af bókum að við þurfum heilt herbergi undir þær!! Já, þær og spilin! Hryllingur að bera þetta, kvíði bara fyrir því að þurfa að gera þetta aftur eftir ár! Við gátum svo ekkert byrjað að taka upp fyrr en stóru hlutirnir komu, það er nú komin einhver mynd á þetta hjá okkur. Hlakka til að fá gesti í heimsókn, loksins get ég boðið fólki upp á eitthvað annað en rúmið til að sitja á !! ;)

6 Comments:

  • Til hamingju með að vera flutt í íbúðina. Það er svo gaman að vera út af fyrir sig;)

    By Blogger Ellan, at 11:13 f.h.  

  • Solla segir: Til hamingju með það, nú verðuru að bjóða fljótlega í heimsókn : )

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:03 e.h.  

  • Hæ skvís, til hamingju með íbúðina... mér finnst hún æði... lofar rosalega góðu ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:33 e.h.  

  • Til hamingju með að vera loksins flutt :)
    Kv Heba

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:21 f.h.  

  • Já og það er soldið langt síðan að þú fluttir, er ekki eitthvað að frétta ;Þ Kíki reglulega hingað inn skohhh ...

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:55 e.h.  

  • Og jamm þetta var ég, Heba :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home