Aldan

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Lok lok og læs

Nokkur mál á dagskrá...

Lokað blogg
Ég ákvað að loka blogginu meðan ég væri að taka ákvörðun um framhaldið... ég sé á teljaranum að ég er að fá ótal heimsóknir hérna inn en ég fæ fá sem engin komment, auðvitað eru þarna nokkrir sem standa sig, en flestir hinna ekki.. ég nennti ekki að blogga og sást það á fáum færslum.. ég hef líka ekkert til að blogga um.. en það virtist ekki hafa áhrif á vinsældirnar :)
Eftir að ég lokaði fékk ég fjölmörg komment og beiðnir um að ég myndi opna þetta aftur eða allavega að bjóða þeim aðilum þá aðgang að blogginu. Ég er ekki frá því að aukinn fjöldi símtala og msn samtala tengist lokun bloggsins á einhvern hátt. En já... mér leiðist lokunin sjálf afskaplega, ég nota linkana of oft til að ég nenni að standa í því að vera að logga mig inn með passa í hvert skipti sem ég þarf að nota eitthvað af þeim, svo ég mun nú opna bloggið núna aftur og hef það ólæst fyrst um sinn meðan ég held áfram að bulla um ekkert :)

Bloggarar
Blogghatarinn mikli er kominn á stjá... mjög skemmtilegt að lesa þetta...
Flugmaðurinn hefur ákveðið að hætta, ég veit ekki hvort við getum spornað við hvarfi hans úr netheimum, en ég mæli með því að fólk reyni það með kommentum :)
Netverjinn er að reyna að hökta í gang aftur, við mikinn fögnuð aðdáanda, þó einna helst hinna mörgu persónuleika Hannfríðar Lilju eins og Nína benti svo skemmtilega á, sem hafa saknað hans... vonum að hann hrökkvi almennilega í gang og bruni af stað...

Heimilistæki og tengd málefni
Blogghatarinn mikli talaði fyrst um þrennu og svo um fernu í sambandi við ólukku á heimilinu. Ég, hinsvegar fékk fimmu og nú þegar er þurrkarinn, þvottavélin, bíllinn, eldavélin og svo ísskápurinn búinn að klikka... Ótrúlegt alveg, þurrkaranum komum við í lag sjálf, fengum nýja eldavél í staðinn fyrir gömlu, þvottavélin fékk nýjan takka upp á 2 þús, bíllinn þurfti nýja flautu og spegil og heildarkostnaður viðgerðar var um 15 þús kr, en svo þurftum við að fjárfesta í nýjum ísskáp upp á 70 þús takk fyrir góðan daginn. Allt í sama mánuðinum. Ég vona að það sé nóg komið í bili, ég vona líka að þetta sé ekki dulið fetish á nýjum heimilistækjum, hef ekki efni á fleirum í bili, ekki svona rétt fyrir jólin.

Strætósskýlið á Vesturlandsveginum!
Hvaða fokkings strætó skýli hugsið þið? Nákvæmlega.. þarna er ekkert fokkings strætó skýli þar eins og ég komst að um daginn. Ég valdi mér skemmtilegan dag til að taka strætó í vinnuna... fínt veður að heiman og upp í vinnu, um morguninn var svo komin grenjandi rigning og rok. Strætóskýlið er þannig staðsett að ég þurfti að labba yfir einhverja götu og klífa svo hæð í þessu fjandans veðri, heppni að ég rann ekki á rassgatinu niður brekkuna þegar ég missteig mig á leiðinni upp, frekar sleipt þarna enda bara gras og drulla. Svo komst ég upp á veginn þar sem skiltið er, þá stend ég bara á miðjum Vesturlandsveginum takk fyrir. Í mígandi rigningu og átta umferðin eins og hún er nú skemmtileg, hefst handa við að ausa yfir mig úr pollunum á götunni. Ég veit ekki hvort ég var þakklát fyrir að umferðin var ekki minni, því þá safnaðist minna vatn í pollana sem svo gusaði yfir mig þar sem ég gat mig hvergi hreyft en ég stóð allavega þarna og fékk stöðugar gusur yfir mig. Ef ég hefði hreyft mig, þá stóð valið um að lenda fyrir bílum eða standa í miðri brekkunni þar sem strætó myndi ekki sjá mig, í þeirri hættu á að missa fótana og renna niður á aðkomandi umferð í götunni fyrir neðan. Þetta voru ákaflega blautar 10 mínútur plús sem ég beið þarna, ég sneri mér undan í verstu gusunum og smjattaði á tjörunni. Ég get rétt ímyndað mér hvernig hefur hlakkað í vörubílsstjórunum þegar þeir keyrðu framhjá og reyndu að fara sem næst mér. Þegar strætó kom loksins var ég svoleiðis rennblaut að hálfur vagninn hló að mér þegar ég lak inn í vagninn. Ég spurði bílstjórann hvort það væri virkilega ekki hægt að finna betri staðsetningu fyrir þetta, hann kvað svo ekki vera. Þegar ég kom heim þurfti ég líka að vinda nærbuxurnar.. það var skemmtilegt. Næst labba ég aðeins lengra og held mér þurri.

Ég held þetta sé komið gott í bili... ég ætla að snúa mér aftur að harðfiskinum... góðar stundir :)

9 Comments:

  • jey

    .... en ekki við óförum við strætóbiðina þá er það :S

    hinn margfaldi persónuleiki.. hannfríður

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:24 f.h.  

  • Afhverju hafðirðu ekki samband við mig fyrst þú þurftir að taka strætó, veist að ég keyri þarna framhjá daglega og fer alla leið niður í bæ.

    You silly girl :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:51 f.h.  

  • Ég vildi ekki bleyta símann....?? Æ... ekki koma með svona sniðugar hugmyndir "eftirá". Það er bara ljótt!

    By Blogger Aldan, at 9:56 f.h.  

  • Va hvad eg er anaegd ad fa blogg :) skal sko vera duglegri ad kommenta nuna :) love ju krusidullan min
    Anna panna

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:56 e.h.  

  • Comment :)
    Æji hef ekki kíkt hérna inn í smá tíma, var að lesa þetta með Robin. Innilegar samúðarkveðjur Alda mín!

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:27 e.h.  

  • gott að þú ert búin að opna þetta aftur, kíkti hér inn um daginn og allt bara lok og læs og ég nennti ekki að reyna að finna út hvernig ég ætti að komast inn.

    En núna getur maður lesið bloggið óhindrað : )

    Kv. Sólveig.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:38 e.h.  

  • Hellú skvís
    Þú er svo sniðug:) audda bara að loka til að fá smá athygli en ekki hvað!!!
    Þetta hefur hvarlað að mer nokkrum sinnum þegar ég fæ ekki nógu mikla athygli hehehehe;)
    En þú ert nú svo skemmtilegur penni að maður vill nú ekki missa síðuna út bloggrúnti dagsins svo það er greinilegt að maður verður að standa sig betur í commentakerfinu.
    Hafðu það gott,
    kv. fra Baunalandi

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:09 e.h.  

  • Æi, Alda mín ég finn sárlega til með þér! Ekki nóg með að lenda í heimilistækjaóláni heldur fékkstu líka gusur og strætósturtu! Vona að þetta hafi bara verið skammvinn óheppni og að lukkan sé á næsta leiti:)

    Velkomin aftur í bloggheima, ég saknaði þín þó ég sé voða löt að kvitta:(
    Kv. Nína

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:09 e.h.  

  • Æ takk kærlega fyrir viðbrögðin krakkar :) þið eruð yndisleg :)
    Knús og kossar :o*

    By Blogger Aldan, at 2:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home