Aldan

föstudagur, september 15, 2006

I Concur!!

Já.. Örferðin er yfirstaðin, við Audibet skruppum í eina nótt í Ölfusborgir! Þetta átti að vera tarothittingur en Hjöddan beilaði en þetta var fjör samt sem áður. Sannkallað Rockstar kvöld, bæði Rockstar tekið í Singstar og Supernova! Get ekki leynt ykkur vonbrigðunum sem helltust yfir mann þegar Magni var í bottom 2! Maður vissi þá að hann væri á leiðinni heim... en jæja við drukkum sorgir okkar í burtu og ég fór í pottinn... alveg geggjað veður og meira að segja stjörnubjart á köflum!
Annars komu hluti af Snúrunum saman í kvöld á Maru til að kveðja hana Auði okkar! Voða gaman að sjá stelpurnar, alltof langt síðan síðast.. Gerður næstum komin viku framyfir áætlaðan komutíma, Gróa ófrísk... þessar Snúrur standa sig vel í því að fjölga mannkyninu! Eins og ég segi þá verður ekki langt þar til við tökum yfir heiminn!! Byrjum samt á Íslandi!
Gerður var svo að segja mér frá því að það verða svaka tónleikar hérna í desember með einhverju liði úr Rockstar!!! Dilana, Storm og Toby t.d. :)

Tengo un dolor de cabeza... goodnight

p.s. Anna er komin til Slóveníu... :)

2 Comments:

  • Já við stöndum okkur vel við að fjölga, vona að það fari að koma að mér ;)
    Mætti Gróa á Maru?

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:45 e.h.  

  • Ha? Ertu með hausverk?

    Ég ætlaði SVO að koma á Maru... er búin að vera alveg í rusli yfir að hafa gleymt þessu :(

    By Blogger Halldóra, at 8:47 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home