Aldan

laugardagur, júní 08, 2002

Jæja.. þá vantar klukkuna næstum 2 mínútur í 5! Alveg sama hvað klukkan hér að neðan segir. Ég er sikker á því að þjóðverjar séu búnir að taka við völdum á Kúbu.. var sko að hringja þangað og það er bara einhver Þýsk kelling (ekki móðgun samt við þjóðverja) sem svarar og spyr was ist los... en svo gæti þetta náttúrulega verið bara syfjan sem talar.. Ætli maður fari að tala þýsku þegar maður missir vitið! Pælum í þessu seinna... !
Það ætti að banna fólki að nota símann eftir klukkan tólf á kvöldin. Hann Kalli vin ætlar í sumarbústað á morgun... ég segi bara gút lok og gættu þín á mannætu býflugunum sem þjóðverjarnir eru búnir að vera að strá yfir landið í nótt!! Ég og mútta keyptum Grill í gær... ehemm ef það getur kallast Grill sko það var á þúsund í Hagkaup, eftir smá pælingar og púst settum við það saman... en það var svo valt að við ætluðum barasta ekki að þora að grilla á því... gerðum það samt enda erum við með góða tryggingu í VÍS :) ÉG hef barasta aldrei smakkað jafn góðan mat.... ljúffengt fjallalamb.. sem minnir mig á það. Hvað er málið með Bónus.. það tók mig hálftíma (ok næstum því) að finna grillkjöt sem ekki var rauðvínslegið!!!! Það mætti halda að Bónus væri reyna að gera alla að ÖLKUM.. never mind.. ok ég er þreytt... góða nótt..... WAS IST LOS!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home