Aldan

miðvikudagur, júní 26, 2002

Þið trúið þessu aldrei!! Ég kem í vinnuna eftir næstum 4 daga sumarfrí!! og þá er bara búið að klippa á spottann við MSN! Við megum ekki vera á því og það er búið að taka það úr tölvunum hér :( *grátur* Hvernig geta þeir gert þetta! MSN er lífsæð sem flæðir hér um og gefur lífinu í vinnunni TILGANG! Ég meika ekki sumarið án MSN! MSN! MSN!

ohhhhhhhhhhhhhhhhh....

en allavega ég er komin úr fríi.... og meira að segja frekar BLAUTU fríi.. en ekki áfengisblautu.. ónei heldur RIGNINGARBLAUTU.... ég er að segja satt með þetta... ég hef sagt þetta áður.. Íslendingar ættu að safna saman í bauk handa mér og borga mér fyrir að fara ekki í frí!!! Það rignir alltaf! (Eins og kom fram í fyrri bloggum)
Þetta var samt gott frí! Ég gerði EKKERT! nákvæmlega ekkert.. ég svaf og las og horfði á sjónvarpið.... ÉG ELSKA AÐ MEGA AÐ VERA LÖT! Og út af því að ég gerði ekki neitt hef ég heldur ekki frá neinu skemmtilegu að segja... þannig ég bið bara að heilsa.. út og suður!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home